Náðst hefur samningur milli Vegagerðarinnar og Héraðsverk um að Héraðsverk taki að sér framkvæmdir við Þvottár- og Hvalnesskriður.
Um er að ræða endurlögn 4,2 km kafla Hringvegar (1) um Þvottár- og Hvalnesskriður í Djúpavogshreppi og Sveitarfélaginu Hornafjörður. Vegarkaflinn nær frá slitlagsenda við norðanverðar Þvottárskriður að slitlagsenda sunnan Hvalnesskriða.
Útlögn klæðingar skal lokið 1. júlí 2008. Verkinu skal að fullu lokið fyrir 1. september 2008. Helstu magntölur eru:
| Fylling og fláafleygar |
56.000 |
m3 |
| Neðra burðarlag |
7.000 |
m3 |
| Efra burðarlag |
4.000 |
m3 |
| Tvöföld klæðing |
27.000 |
m2 |
| Ræsalögn |
256 |
m |
| Bitavegrið |
2.860 |
m |
| Grjótkassar |
430 |
stk |
| Frágangur fláa |
67.000 |
m2 |