Verkinu miðar vel áfram, fylling komin alla leið, fyrir utan fyrstu 1300m sem lögbann hefur verið sett á og neðra burðarlag á kafla.
Var unnið fram til 10. febrúar þar til veturkonungur setti verkið í stopp, með miklum frosthörkum. Stefnt er að því að hefja vinnu aftur á svæðinu ekki seinna en í byrjun maí, fer það þó eftir veðri.
Fluttir hafa verið um 800.000m3 við verkið og efnisvinnsla er rúmlega hálfnuð. 70% af ræsalögn er lokið eða rétt rúmlega 1300m.
Skipt var um yfirverkstjóra í verkinu í Nóvember þegar Benedikt Ólason tók við af Birni Björnssyni, sem hafði verið við stjórn á verkinu frá því vinna við verkið hófst. Þakkar Héraðsverk Birni fyrir vel unnin störf hjá Héraðsverk.